Sparnaður


Mánuð eftir mánuð talar fólk um peningaleysi. Óvænt útgjöld geta komið inná borð hjá mjög skipulögðu og fjárhagslega öguðu fólki eins og hjá öllum.
Hér eru nokkrir puntkar sem ég tel að geti nýst öllum, hvort sem menn eru í peningavandræðum eða ekki. Með því að tileinka sér alla punktana til lengri tíma, þá mun það gjörbreyta þinni fjárhagsstöðu. Þú munt líka finna fyrir því ef þú tekur einn eða nokkra punkta og tileinkar þér þá í ár eða meira. Nr. 4, 6 og 8 eru mínir uppáhalds.
Ganga meira og nota bílinn minna.
Bensínlítrinn er kominn í 200 kr og á bara eftir að hækka á árinu.
Því minna sem bílnum er ekið því minna verður viðhald á bílnum.
Vera skipulagður þegar kemur að matarinnkaupum og fara sjaldnar inn í verslun
Gerðu innkaupalista og farðu eftir honum.
Kauptu heilan kjúlla í stað þess að kaupa bringur eða lundir. Taktu kasjúhnetur í bökunardeildinni í staðin fyrir heilsudeildinni o.s.frv. Vertu sniðugur í innkaupum.
Settu upp matseðil fyrir vikuna og verslaðu það sem vantar.
Færri ferðir þýðir minna keypt af óþarfa.
Nýta betur það sem þú átt af ÖLLU, minnkaðu sóun
Sniðugt að hafa TTK-rétt (taka til í kæli) reglulega, lágmark 1x í viku. Ef þú ert oft að henda ósnertum mat, þá skaltu endurskoða innkaupin þín. Þú ert að henda peningum með því að henda mat.
Notaðu föt lengur. Ágætt að spurja sig hvort það sé í raunveruleikanum þörf á þessari flík sem þú ætlar að kaupa. Markmið ársins: hættu að vera tískuþræll.
Kláraðu snyrtivörur áður en þú kaupir þér nýjar, (margir eiga 5 tegundir af body lotion og svona mætti lengi telja).
Búum til minningar og hættum að kaupa áskrift að sjónvarsefni
Ódýrasta áskriftin að Stöð 2 kostar 9.990 kr mánuði eða 119.880 kr á ári.
Skiptu út dýrum áskriftum fyrir ódýrari, t.d. þá kostar Netflix $10 (1.200 kr.).
Svo ertu skyldug/ur til að borga fyrir Rúv, láttu það duga því það er temmilega leiðinlegt. Þar að auki eru margar ókeypis íslenskar sjónvarpsstöðvar með ágætis efni inná milli.
Búðu til minningar með fjölskyldunni í stað þess að sitja upp í sófa. Farðu í sund, út á leikvöllinn, í heimsókn til vina/ættingja, lestu bók, spilaðu, njóttu. Það fer illa saman að kvarta undan tímaleysi á meðan meðal einstaklingur horfir í 4 klst á dag á sjónvarp.
Taktu með þér nesti og borðaðu sjaldnar úti
Settu þér markmið að fara bara einu sinni í viku út að borða.
Græjaðu nesti fyrir morgundaginn, það sparar tíma, pening og minnkar sóun. Þú finnur það bæði í peningaveskinu og á hliðarspikinu
Nýttu afganga frá kvöldinu áður í nesti fyrir vinnuna.
Þegar þú ferðast um landið, taktu með þér nesti. Kostnaðurinn er fljótur að safnast upp fyrir 4 manna fjölskyldu sem ætlar að koma við í sjoppum eða matsölustöðum á leiðinni. Þetta verður iðulega líka hollari kostur.
Losaðu þig við líkamsræktarkortið ef þú ert ekki að nýta það 3x í viku eða oftar
Ertu áskrifandi að líkamsræktarkorti sem þú notar ekki? Ef svo er, ekki endurnýja áskriftina og farðu ekki seinna en núna í það að segja því upp.
Hreyfum okkur úti eða heima. Göngutúr, fjallgöngur og heima æfingar kosta ekkert.
Sund, hlaupahópar, blak og fl. er dæmi um hreyfingu sem kosta minna.
Skipulögð námskeið í x vikur er oft góður kostur fyrir fólk sem vinnur í skorpum. Þá greiðir þú einungis fyrir x vikur og nýtir peninginn miklu betur.
Drekktu meira vatn og minna af drykkjum sem þarf að borga fyrir
Vatn kostar ekkert og er hollasti drykkur sem völ er á.
Ein gosflaska á dag kostar ca. 250 kr. eða 91.250 kr. á ári.
Minnka (og svo hætta) áfengis- og tópaksnotkun
Ef ekki til að spara pening þá a.m.k. til að bæta heilsuna.
4 bjórar keyptir bar á viku kosta 4000 kr. sem gera 208.000 kr. á ári.
4 bjórar úr ÁTVR á viku kosta 1200 kr. eða 62.400 kr. á ári.
Hálfur pakki af sígarettum á dag kostar 650 kr. eða 237.250 kr. á ári.
Pakki af sígarettum á dag kostar 1300 kr. eða 474.500 kr. á ári.
Gætir þú gert eitthvað við auka 682.500 kr. á ári eða auka 56.000 kr á mánuði?
Áfengisnotkun fylgir oft meiri kostnaður eins og leigubílar, skyndibitamatur og verkjalyfjakaup. Ef það er að hlaupa á mörgum 1000 kr. á viku hjá þér, þá er þarna frábær leið fyrir þig að spara pening á mjög auðveldan máta.
Skipulegðu sumarfríið snemma
Bókaðu flug og hótel eins snemma og hægt er.
Nýttu þér Hraðtilboð og fleira sem flugfélögin bjóða uppá.
Safnaðu punktum í gegnum kreditkort (ps. lærðu að umgangast kreditkort og nýttu þér kosti þess).
Eigðu fyrir því sem þú ætlar að kaupa
Það er dýrt að taka yfirdrátt eða kreditkorta raðgreiðslur.
Notaðu seðla til að fá tilfinningu fyrir útgjöldunum þínum.
Endurskoðaðu símareikninginn þinn
Það er ekki á ábyrgð símafyrirtækisins að þú sért í réttri áskrift! Það er á þinni ábyrgð.
Fáðu aðstoð við að finna út hvort þú sért í áskrift sem hentar þinni notkun.
Settu þér markmið og reglur um útgjöldin þín
Skammtaðu þér pening til neyslu fyrir mánuðinn. Skiptu þeirri upphæð niður fyrir hverja viku.
Oft gott að taka eina og eina viku þar sem þú notar einungis peninga. Þannig færðu betri tilfinningu fyrir því hvað hlutirnir kosta.
Agi! Vertu agaður í fjármálum.
„Munurinn á fátæku- og ríku fólki er, að fátækt fólk sparar eftir að það er búið að greiða allt [ef það er afgangur], en ríkt fólk sparar fyrst og nýtir svo afganginn til þess að greiða allt“ – Jim Rohn.
-Elín Kára-


Comments